Viðburðir / Events
Aðalfundur Listfræðafélags Íslands
í húsnæði Sambands íslenskra
myndlistamanna við Hafnarstræti 16, 101 RVK.
Stjórnina skipa Aðalheiður
L. Guðmundsdóttir, formaður, Gunnar J. Árnason, ritari, og Shauna L.
Jones, gjaldkeri.
Dagskrá aðalfundar er svohljóðandi (í samræmi við lög félagsins):
Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar.
Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til
samþykktar.
- Lagabreytingar (ef við á).
- Kjör stjórnar. Kjör tveggja endurskoðenda reikninga.
- Ákvörðun
árgjalds fyrir næsta starfsár.
- Önnur mál.
Senn
er liðið eitt ár frá stofnfundi Listfræðafélags Íslands þann 19. maí
2009. Starfsemi félagsins fór hægt á stað en örugglega og er nú til
orðinn vísir að vettvangi sem við munum vonandi öll móta áfram í góðri
samvinnu. Mikilvægt er að sem flest ykkar mæti því félagið þarfnast
hugvits ykkar allra til að verða að öflugum vettvangi er styður við
listfræði í landinu og hagsmuni félagsmanna. Stjórnin gerir það að
tillögu sinni að við gefum okkur tíma til að ræða saman um málefni
félagsins á fundinum undir liðnum „önnur mál". Hugmyndir þeirra sem
skilning og þekkingu hafa á ákveðnum málefnum sem félagið ætti að beita
sér fyrir eru sérstaklega velkomnar.
Stjórnin mun í upphafi kynna störf félagsins á síðastliðnu ári.
Félagið er formlega skráð og með kennitölu. Félagið á bankareikning í
Arionbanka en hefur haft nánast ekkert fjármagn til umráða þar sem
árgjald var ekki rukkað. Opnuð hefur verið heimasíða félagsins og er
slóðin www.listfraedi.is.
Lög félagsins verða lögð fram til samþykktar á aðalfundi, en
smávægilegar formbreytingar þurfti að gera á lögunum til að félagið
fengist skráð. Á aðalfundi verður
félagaskrá stofnfélaga staðfest og nýir meðlimir samþykktir inn í
félagið. Taka þarf ákvörðun um félagsgjald, fyrir komandi starfsár.
Stjórnin félagsins hvetur sem flesta til að taka þátt í starfi
félagsins. Á aðalfundi verður rædd sú tillaga stjórnar að félagið skipi
í nefndir til að vinna að brýnum málefnum. Þörf er á ritnefnd til að
vinna að heimasíðu félagsins og útgáfu fagrits á sviði listfræða. Taka
þarf kjör listfræðinga til skoðunar og í því skyni mætti skipa
kjaranefnd til að skoða hvernig bæta megi kjör þeirra. Auk þess
þarf að vinna að því að tengja félagsmenn við starfsemi sambærilegra
félaga erlendis, ráðstefnur, háskóla, útgáfur o.s.frv. Frekari tillögur
eru vel þegnar enda mikilvægt að við vinnum í sameiningu að því að móta
farveg fyrir starfsemi félagsins. Þeir sem vilja leiða félagið áfram og
sitja í stjórn Listfræðafélagsins næsta ár eru hvattir til að bjóða sig
fram til starfa.
Á vormánuðum hefur listfræðafélagið staðið fyrir málþingum sem hafa
gengið framar vonum, en um eða yfir hundrað manns hafa mætt á hvert
þing. Næsta málþing verður í Þjóðminjasafni Íslands 26. maí í tengslum
við Listahátíð í Reykjavík. Á þingingu verður fjallað um myndlist og
ljósmyndir. Á haustmánuðum verða svo málþing í samvinnu við
Hönnunarsafn Íslands og annað um listrými í borg í samvinnu við
arkitekta og byggingarlistarfræðinga. Málþingin hafa fengið góðan
hljómgrunn, en þeim var ætlað að virkja sem flesta á vettvangi
listfræða og endurspegla þá miklu breidd sem sviðið spannar.
SÝNINGARSTJÓRNUN - LIST EÐA FRÆÐI?
Á þriðja málþingi Listfræðafélagsins á vormánuðum verður áhersla lögð á sýningarstjórnun. Frummælendur munu varpa ljósi á ýmsar hliðar þess starfs og velta fyrir sér mörkum listar og fræða, túlkunar og miðlunar sem í því felast. Rætt verður um breytingar sem orðið hafa á hlutverki sýningarstjóra, mismunandi starfsvettvang og nálganir. Sérstaklega verður gætt að sýningarstjórn í íslensku samhengi, væntingum, þörfum og möguleikum þessa vettvangs, en líka tekist á við fræðileg viðfangsefni fagsins. Hver er ábyrgð sýningarstjóra gagnvart myndlist og listasögu? Hver er staðan þegar kemur að varðveislu og rannsóknum á íslenskri sýningasögu? Frummælendur munu hver á fætur öðrum halda stutt og skorinort erindi og í kjölfarið verður boðið upp á fyrirspurnir og samræður. Fundarstjóri verður Hanna Styrmisdóttir sýningarstjóri og þingið verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, miðvikudaginn 14. apríl 2010  kl. 17.00 til 19.00.
Frummælendur:
Hafþór Yngvason, listfræðingur og forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur
Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og stjórnarformaður Nýlistasafnsins
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
Ólöf K. Sigurðardóttir, listfræðingur og forstöðumaður Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnafjarðar
Markús Þór Andrésson, sjálfstætt starfandi sýningarstjóri
Túlkun myndlistar á líðandi stund
Veigamikill þáttur í starfi þeirra sem skrifa um myndlist er að fjalla
um verk listamanna og sýningar í samtíðinni, að segja frá og greina
myndlistina um leið og hún kemur fyrst fyrir almenningssjónir. Undir það
starf falla textar í sýningarskrám og umfjöllun í tímaritum, dagblöðum,
útvarpi og öðrum fjölmiðlum. Þetta er viðfangsefni annars málþingsins í
málþingaröð Listfræðafélagsins nú í vor og hefur það fengið
yfirskriftina Á mörkum listfræða og myndlistar: Túlkun myndlistar á
líðandi stundu.
Í skrifum listfræðinga og gagnrýnenda í sýningarskrám og fjölmiðlum felst samræða við
lesendur og listamenn um það sem listamenn, gallerí og söfn láta frá
sér á hverjum tíma. Þar er ekki hægt að byggja á viðbrögðum
listaheimsins eða því hvernig verkin fá á sig merkingu og skýrast í
sögulegu samhengi en þó er það einmitt tilgangur skrifanna að greina
merkingu verkanna, túlka þau og setja í samhengi við bæði söguna og
líðandi stund. Þeir sem leggja slík skrif fyrir sig taka þannig nokkra
áhættu líkt og listamennirnir sjálfir þegar þeir láta frá sér ný verk:
Textinn þarf að miðla tilgangi og inntaki verkanna en jafnframt að meta
nýmæli og gildi þeirra fyrir myndlistina og menninguna í víðara
samhengi. Hvort sem um er að ræða gagnrýni eins og í dagblöðum eða
ítarlegri greiningu eins og í sýningarskrám vakna af slíkum skrifum
ýmsar áhugaverðar spurningar um samband fræða og listar, ábyrgð
höfundar gagnvart listamönnum og lesendum sínum og aðferðirnar sem
beita þarf til að túlka listaverk í samtímanum.
Frummælendur á þessu málþingi verða:
Jón Proppé, listheimspekingur og gagnrýnandi
Margrét Elísabet Guðmundsdóttir, fagurfræðingur og gagnrýnandi
Ólafur Gíslason, listfræðingur og gagnrýnandi
Oddný Eir Ævarsdóttir, safnaheimspekingur og rithöfundur
Þóra Þórisdóttir, myndlistarkona og gagnrýnandi.
Nýlistasafnið er samstarfsaðili Listfræðafélagsins að
þessu sinni, ásamt Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar.
Málþing um listfræðirannsóknir