May 2010 Archives

Aðalfundur Listfræðafélags Íslands er boðaður 19. maí 2010 kl. 17-19
í húsnæði Sambands íslenskra myndlistamanna við Hafnarstræti 16, 101 RVK.
Stjórnina skipa Aðalheiður L. Guðmundsdóttir, formaður, Gunnar J. Árnason, ritari, og Shauna L. Jones, gjaldkeri.

Dagskrá aðalfundar er svohljóðandi (í samræmi við lög félagsins):

- Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar.
- Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar (ef við á).
- Kjör stjórnar. Kjör tveggja endurskoðenda reikninga.
- Ákvörðun árgjalds fyrir næsta starfsár.
- Önnur mál.

Senn er liðið eitt ár frá stofnfundi Listfræðafélags Íslands þann 19. maí 2009. Starfsemi félagsins fór hægt á stað en örugglega og er nú til orðinn vísir að vettvangi sem við munum vonandi öll móta áfram í góðri samvinnu. Mikilvægt er að sem flest ykkar mæti því félagið þarfnast hugvits ykkar allra til að verða að öflugum vettvangi er styður við listfræði í landinu og hagsmuni félagsmanna. Stjórnin gerir það að tillögu sinni að við gefum okkur tíma til að ræða saman um málefni félagsins á fundinum undir liðnum „önnur mál". Hugmyndir þeirra sem skilning og þekkingu hafa á ákveðnum málefnum sem félagið ætti að beita sér fyrir eru sérstaklega velkomnar.

Stjórnin mun í upphafi kynna störf félagsins á síðastliðnu ári. Félagið er formlega skráð og með kennitölu. Félagið á bankareikning í Arionbanka en hefur haft nánast ekkert fjármagn til umráða þar sem árgjald var ekki rukkað. Opnuð hefur verið heimasíða félagsins og er slóðin www.listfraedi.is. Lög félagsins verða lögð fram til samþykktar á aðalfundi, en smávægilegar formbreytingar þurfti að gera á lögunum til að félagið fengist skráð. Á aðalfundi verður félagaskrá stofnfélaga staðfest og nýir meðlimir samþykktir inn í félagið. Taka þarf ákvörðun um félagsgjald, fyrir komandi starfsár.

Stjórnin félagsins hvetur sem flesta til að taka þátt í starfi félagsins. Á aðalfundi verður rædd sú tillaga stjórnar að félagið skipi í nefndir til að vinna að brýnum málefnum. Þörf er á ritnefnd til að vinna að heimasíðu félagsins og útgáfu fagrits á sviði listfræða. Taka þarf kjör listfræðinga til skoðunar og í því skyni mætti skipa kjaranefnd til að skoða hvernig bæta megi kjör þeirra. Auk þess þarf að vinna að því að tengja félagsmenn við starfsemi sambærilegra félaga erlendis, ráðstefnur, háskóla, útgáfur o.s.frv. Frekari tillögur eru vel þegnar enda mikilvægt að við vinnum í sameiningu að því að móta farveg fyrir starfsemi félagsins. Þeir sem vilja leiða félagið áfram og sitja í stjórn Listfræðafélagsins næsta ár eru hvattir til að bjóða sig fram til starfa.

Á vormánuðum hefur listfræðafélagið staðið fyrir málþingum sem hafa gengið framar vonum, en um eða yfir hundrað manns hafa mætt á hvert þing. Næsta málþing verður í Þjóðminjasafni Íslands 26. maí í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Á þingingu verður fjallað um myndlist og ljósmyndir. Á haustmánuðum verða svo málþing í samvinnu við Hönnunarsafn Íslands og annað um listrými í borg í samvinnu við arkitekta og byggingarlistarfræðinga. Málþingin hafa fengið góðan hljómgrunn, en þeim var ætlað að virkja sem flesta á vettvangi listfræða og endurspegla þá miklu breidd sem sviðið spannar.

May 2010

                     
Su Þr Mi Fi Lau
1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31

About this Archive

This page is an archive of entries from May 2010 listed from newest to oldest.

April 2010 is the previous archive.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.