Listfræðafélagið heldur opið málþing í Nýlistasafninu við Skúlagötu 28, þriðjudaginn 30. mars. Málþingið hefst kl. 17.00 og stendur til kl. 19.00.
Veigamikill þáttur í starfi þeirra sem skrifa um myndlist er að fjalla um verk listamanna og sýningar í samtíðinni, að segja frá og greina myndlistina um leið og hún kemur fyrst fyrir almenningssjónir. Undir það starf falla textar í sýningarskrám og umfjöllun í tímaritum, dagblöðum, útvarpi og öðrum fjölmiðlum. Þetta er viðfangsefni annars málþingsins í málþingaröð Listfræðafélagsins nú í vor og hefur það fengið yfirskriftina Á mörkum listfræða og myndlistar: Túlkun myndlistar á líðandi stundu.
Í skrifum listfræðinga og gagnrýnenda í sýningarskrám og fjölmiðlum felst samræða við lesendur og listamenn um það sem listamenn, gallerí og söfn láta frá sér á hverjum tíma. Þar er ekki hægt að byggja á viðbrögðum listaheimsins eða því hvernig verkin fá á sig merkingu og skýrast í sögulegu samhengi en þó er það einmitt tilgangur skrifanna að greina merkingu verkanna, túlka þau og setja í samhengi við bæði söguna og líðandi stund. Þeir sem leggja slík skrif fyrir sig taka þannig nokkra áhættu líkt og listamennirnir sjálfir þegar þeir láta frá sér ný verk: Textinn þarf að miðla tilgangi og inntaki verkanna en jafnframt að meta nýmæli og gildi þeirra fyrir myndlistina og menninguna í víðara samhengi. Hvort sem um er að ræða gagnrýni eins og í dagblöðum eða ítarlegri greiningu eins og í sýningarskrám vakna af slíkum skrifum ýmsar áhugaverðar spurningar um samband fræða og listar, ábyrgð höfundar gagnvart listamönnum og lesendum sínum og aðferðirnar sem beita þarf til að túlka listaverk í samtímanum.
Frummælendur á þessu málþingi verða:
Jón Proppé, listheimspekingur og gagnrýnandi
Margrét Elísabet Guðmundsdóttir, fagurfræðingur og gagnrýnandi
Ólafur Gíslason, listfræðingur og gagnrýnandi
Oddný Eir Ævarsdóttir, safnaheimspekingur og rithöfundur
Þóra Þórisdóttir, myndlistarkona og gagnrýnandi.
Nýlistasafnið er samstarfsaðili Listfræðafélagsins að þessu sinni, ásamt Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar.